1. kafli

Föstudagurinn þrettándi

Ágústa virðir fyrir sér fötin og dótið sem hún er búin að raða ofan á rúmið sitt; Hrein hversdagsföt, látlaus grænn kjóll, hælaskór, handklæði, sundföt, snyrtitaska, förðunarvörur, dökkblá 66º Norður-vetrarúpla, konfektkassi, prjónahúfa og ullarvettlingar. Eftir að hafa sannfært sig um að hún sé búin að tína allt til smellir hún í góm og dregur síðan fram silfraða ferðatösku úr fataskápnum sínum. Hún pakkar öllu niður í töskuna fer síðan fram í stofu og kveikir á tónlistinni. Hún er ekki lengi að velja lagið Heim með Öldu Dís.
Því næst fær hún sér sæti á sófanum og opnar fartölvuna sína. Hún rennir lauslega yfir skýrslurnar sem hún hafði eytt mest öllu kvöldinu í að skrifa og fara yfir áður en hún lokar tölvunni á ný og stendur á fætur. Hún tekur upp símann sinn og sér að klukkuna vantar nokkrar mínútur í tólf á miðnætti. Hún velur númerið hjá Höskuldi yfirmanni sínum. Hann svarar eftir nokkrar hringingar.
– ,,Sæll. Ég ætlaði bara að láta þig vita að ég er búin að klára skýrslurnar og senda þær til þín.‘‘
– ,,Flott. Og þú ætlar sem sagt norður á morgun?‘‘ spyr Höskuldur í þreytulegum tón. Venjulega myndi hún ekki hringja í hann svona seint nema útaf einhverju mikilvægu, en hún veit að hann mun vinna frameftir þetta kvöld. Hann þarf að undirbúa mikilvægan fund með yfirmönnum þeirra og fulltrúum frá dómsmálaráðuneytinu.
– ,,Já, ég legg af stað milli átta og níu.‘‘
Höskuldur biður hana um að skila kveðju til kollega þeirra fyrir norðan, ef hún skyldi rekast á einhvern þeirra og Ágústa lofar að gera það. Höskuldur minnir Ágústu síðan á að hún er skráð á bakvakt til klukkan sjö í fyrramálið en meðan ekkert alvarlegt á sér stað um nóttina þá ætti ekki að vera nein ástæða fyrir hana að fara úr húsi. Hann segir vaktina vera frekar rólega hjá þeim þessa stundina og að hún muni að öllu eðlilegu getað sofið venjulegum svefni. Ágústa segist hlakka til þess.
– ,,Þú ert búin að vera frekar dugleg síðustu vikurnar, þrátt fyrir allt álagið‘‘, segir yfirmaður hennar, þetta hrós hans fær hana til að brosa um leið og hún finnur hjartað slá aðeins hraðar.
– ,,Takk fyrir það‘‘, segir Ágústa.
– ,,Bara góða ferð og við sjáumst‘‘, segir Höskuldur að lokum.
– ,,Takk, bless‘‘, segir Ágústa og heyrir síðan hvernig yfirmaður hennar slítur símtalinu.
Ágústa Oddgeirsdóttir er rannsóknarlögreglukona hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hún er þrjátíu og þriggja ára gömul, fædd og uppalin í Reykjanesbæ. Það eru meira en níu ár síðan hún byrjaði að vinna sem lögreglukona; fyrst sem sumarafleysingalögga í Vogum, síðan sem lögreglukona í Reykjanesbæ og svo í Reykjavík og fyrir nokkrum mánuðum fékk hún loksins fasta ráðningu hjá miðlægu rannsóknardeildinni á Höfuðborgarsvæðinu. Ágústa er einhleyp og á engin börn. Með árunum hafa ástarsamböndin hennar orðið æ styttri og lengra hefur liðið á milli þeirra. En það getur verið að það muni breytast vegna þess að á morgun mun hún leggja leið sína norður til Akureyrar þar sem hún ætlar á stefnumót með gömlum vini sem hún kynntist á námsárunum.
Ágústa opnar ísskápinn sinn og tekur fram litla dós af Egils Gull áður en hún snýr til baka í stofuna og kemur sér vel fyrir á sófanum. Hún opnar Netflix og velur þar bíómyndina Birds of Prey, sem hún er í skapi til þess að horfa á í annað sinn. Hún opnar svo bjórdósina og fær sér sopa. Strangt til tekið ætti hún ekki að drekka neitt áfengi þar sem hún er jú á bakvakt sem rannsóknarlögregla sem þýðir að hún gæti þurft að fara í útkall þá og þegar. En þar sem klukkan er næstum er orðin miðnætti á fimmtudegi veit hún að það er frekar ólíklegt.
Það eru varla liðnar fimm mínútur af myndinni þegar síminn hennar hringir og hún sér að það er Höskuldur yfirmaður hennar sem er að hringja.
Ágústa bölvar í hljóði áður en hún svarar: – ,,Hæ.‘‘
– ,,Sæl. Geturðu farið yfir í Hafnarfjörð? Það var að koma tilkynning um líkamsárás fyrir utan skemmtistað þar. Það eru komnir að minnsta kosti tveir bílar en þeir báðu um að rannsóknarlögregluna til vara. Aðkoman er víst mjög ljót‘‘, útskýrir Höskuldur.
Ágústa andvarpar áður en hún segir: – ,,Ókei, hvar er þetta?‘‘
– ,,Ölstofan við Flatahraun í Hafnarfirði.‘‘
– ,,Ókei, ég veit hvar það er. Ég legg strax í ‘ann‘‘, segir Ágústa og stendur á fætur.
– ,,Ég segi þeim að þú sért á leiðinni og munir stýra aðgerðum á vettvangi‘‘, segir Höskuldur og leggur á.
Ágústa andvarpar þungt og slekkur á sjónvarpinu.
,,Stýra aðgerðum á vettvangi‘‘? Hlýtur að vera mjög alvarleg líkamsárás, hugsar Ágústa. Hún horfir í andartak reiðilega á bjórdósina áður en hún lítur á klukkuna á veggnum og sér að það er núna komið fram yfir miðnætti. Það er kominn föstudagur. Föstudagurinn þrettándi. Ágústa dæsir og gengur síðan rösklega í anddyrið og klæðir sig í gráa, hnésíða leðurfrakkann sinn utan yfir vínrauðu rúllukragapeysuna. Eftir að hafa klætt sig í brún leðurstígvél með þykkum sóla dregur hún rannsóknarlögregluskilríkin sín úr kommóðuskúffu og hleypur síðan út um dyrnar og niður stigann.
Það er dimmt og rakt úti. Það er komið haust og laufin á trjánum eru löngu byrjuð að falla. Sex ára gamla, hvíta Skoda Octavia-bifreiðin hennar brunar á ógnarhraða eftir blautri Reykjanesbrautinni í átt til Hafnarfjarðar. Meðan Ágústa reynir sitt besta við að taka fram úr án þess að lenda í árekstri bölvar hún hljóðlega yfir að vera ekki komin með nægilega mikla starfsreynslu til þess að geta fengið blá blikkljós í bílinn sinn eins og sumir af vinnufélögum hennar.

Um leið og hún beygir inná Flatahraun í Hafnarfirði getur hún séð allmörg blikkandi blá ljós framundan. Hún leggur bílnum sínum fyrir aftan lögreglubifreið af tegundinni Volkswagen Kombi og stígur svo út í kalda haustnóttina. Fyrir utan skemmtistaðinn sitja nokkrar manneskjur á gangstéttarbrúninni og hjá þeim standa tveir lögregluþjónar sem virðast vera að taka af þeim skýrslu. Fólkinu er greinilega mikið niðri fyrir.
Lögreglumennirnir útskýra fyrir Ágústu hvað hafi átt sér stað: Fyrir þrjátíu og fimm mínútum hafði kona á þrítugsaldri ráðist aftan að karlmanni og slegið hann í höfuðið með bjórglasi. Konan hafði síðan skorið hann ítrekað í andlitið og hálsinn með brotnu glasinu áður en hún var yfirbuguð af dyraverði og nokkrum bargestum. Lögregluna hafði fljótt borið að garði og konan var handtekin. Maðurinn sem varð fyrir árásinni missti mikið blóð og það var nýbúið að flytja hann á brott með sjúkrabíl. Ástand mannsins var talið lífshættulegt. Einn af lögreglumönnunum sýnir Ágústu staðinn á bílastæðinu þar sem árásin átti sér stað. Þar má sjá mikið af blóði. Meðal þeirra vitna sem búið var að ræða við voru nokkrir af vinum konunnar og þau voru öll í mikilli geðshræringu og virtust að auki vera undir áhrifum vímuefna. Ekkert þeirra gat útskýrt hvers vegna hún hafði skyndilega ráðist á manninn og ekkert þeirra kannaðist neitt við hann heldur. Ein lögreglukona útskýrði einnig fyrir Ágústu að árásarkonan hefði verið í mjög mikilli geðshræringu þegar lögregla kom á vettvang og vart viðræðuhæf.
Lögreglukonunni fannst líklegt að hún hafi verið undir áhrifum fíkniefna, auk þess að vera greinilega mikið drukkin. Árásarkonan virtist sjálf vera í miklu sjokki yfir eigin gjörðum.
Eftir að hafa verið á staðnum í hálftíma sá Ágústa í hendi sér að hennar hlutverki á vettvangnum væri í reynd lokið. Götulögreglan hafði staðið sig vel með að taka skýrslur af öllum og Ágústa hafði tekið myndir af blóðinu og fleiru sem tengdist árásinni og sett leifarnar af brotna glasinu í sérstakan poka fyrir sönnunargögn. Einnig hafði hún látið götulögregluna um að hafa uppá mögulegum upptökum af árásinni úr öryggismyndavélum. Ágústa ákveður því næst að keyra til lögreglustöðvarinnar þangað sem konan var flutt.
Lögreglustöðin í Hafnarfirði er við sömu götu og Ölstofan svo að Ágústa er komin þangað eftir örstuttan akstur. Ágústa þekkir vel Albert, miðaldra lögreglufulltrúann sem tekur á móti henni.
– ,,Já, þau sögðu við mig að aðkoman hefði víst verið afar ljót‘‘, segir Albert meðan hann opnar fyrir henni dyrnar úr anddyrinu.
– ,,Það var mikið blóð‘‘, segir Ágústa.
– ,,Hún reyndi víst að skera hann á háls, sögðu þau‘‘, segir Albert og lokar dyrunum eftir Ágústu.
– ,,Hver er svo þessi kona? Einhver sem við þekkjum?‘‘ spyr Ágústa.
– ,,Þórey Halldórsdóttir. Ekki á sakaskrá. En mér skilst að hún sér mjög stór á Instragram‘‘, segir Albert og bendir Ágústu í átt að kaffikönnu á litlu borði, hann segir að kaffið sé nýlegt. Ágústa ákveður að slá til og fá sér einn bolla.
– ,,Og hefur hún sagt eitthvað?‘‘ spyr Ágústa meðan hún hellir kaffi í hvítan bolla með gulri lögreglustjörnu á. Í því má heyra hvernig einhver er að kúgast innar á ganginum.
– ,,Var þetta..?‘‘ spyr Ágústa.
– ,,Já, þetta var Þórey, hún byrjaði að kúgast nánast um leið og hún kom úr bílnum og hún er búin að vera nánast stanslaust ælandi síðan þá. Það eru tvær konur hjá henni á klósettinu einmitt núna, halda um hárið á henni og svona‘‘, útskýrir Albert.
– ,,Þannig að hún er í sjokki eða..?‘‘ spyr Ágústa og fleygir svo einum sykurmola ofan í bollann sinn.
– ,,Það er vægt til orða tekið, það flæðir úr henni bæði gubb og tár. Hún hafði ekki planað þetta neitt fyrirfram, svo mikið er víst.‘‘
– ,,Ókei… en hefur hún sagt eitthvað..?‘‘
– ,,Já. Hún sagði að maðurinn sem hún réðst á hafi nauðgað sér. Við erum að fletta honum upp akkúrat núna.‘‘
– ,,Ja, hérna…‘‘ tautar Ágústa og fær sér sopa af kaffinu.
– ,,Hún sagði… en það var reyndar erfitt að skilja hana með allann grátin og allt það… hún endurtók aftur og aftur, að hún vildi drepa hann, að hann væri ógeð og nauðgari og að hann hefði nauðgað sér.‘‘
Ágústa fylgir Alberti eftir ganginum og að salerni þar sem tvær lögreglukonur krjúpa á gólfinu hjá Þóreyju sem er á hnjánum og hóstar og spýtir í klósettið. Önnur af lögreglukonunum heldur utan um hárið á Þóreyju svo að það fari ekki fyrir andlitið á henni meðan hin strýkur henni yfir axlirnar. Sú sem er að strjúka henni yfir axlirnar heitir Sóley. Þórey sjálf er klædd í háhælaða hvíta skó, ljósar, þröngar, rifnar gallabuxur og græna úlpu. Hún virðist vera vel vaxin og hraust en Ágústa getur ekki séð framan í hana þaðan sem hún stendur.
Sóley tekur eftir Ágústu og segir lágt: – ,,Hæ, ég held að hún sé ekki viðræðuhæf akkúrat núna.‘‘
– ,,Nei, ætli það‘‘, tautar Ágústa.
Þórey byrjar aftur að kúgast og ælir meiru ofan í klósettið.
– ,,Svona svona, hleyptu bara öllu út‘‘, hvíslar hin lögreglukonan hlýlega að Þóreyju.
Sóley hristir höfuðið og ranghvolfir í sér augunum til Ágústu sem að getur ekki varist brosi. Þær Sóley eru búnar að þekkjast frekar vel í nokkur ár alveg frá því þær voru að leigja saman íbúð í Grafarvogi ásamt unnusta Sóleyjar.
– ,,Ég held að við látum hana bara sofa úr sér hérna. Þú getur talað við hana á morgun‘‘, segir Albert.
– ,,Já, sennilega er það best‘‘, segir Ágústa.
Í því byrjar síminn hennar Ágústu að hringja. Hún sér að símtalið er frá stjórnstöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík. Ágústa fer afsíðis til þess að svara.
– ,,Já, Ágústa.‘‘
– ,,Já, ég er hringja útaf líkamsárásinni við Ölstofuna. Ert þú ekki að sinna því máli?‘‘
– ,,Það passar. Ég er núna á stöðinni við Flatahraun. Gerandinn er hér.‘‘
– ,,Við vorum að fá þær fréttir frá spítalanum að fórnarlambið lifði ekki af. Hann er látinn.‘‘
– ,,Er hann látinn?‘‘ hvíslar Ágústa.
– ,,Ég er hræddur um það.‘‘
– ,,Jæja, takk fyrir að láta mig vita.‘‘
– ,,Góða nótt og gangi þér vel.‘‘
– ,,Takk‘‘, svarar Ágústa og leggur á, síðan andvarpar hún þunglega áður en hún stingur símanum aftur inná sig.
– ,,Hvað er að ske?‘‘ spyr Albert sem er núna kominn til hennar.
– ,,Maðurinn sem hún réðst á er látinn.‘‘
– ,,Úff…‘‘
– ,,Það er morðingi að æla í klósettið hjá þér.‘‘
– ,,Já, það er aldeilis.‘‘
– ,,Fyrst að Þórey er óviðræðuhæf skulum við byrja á að komast að því hvern hún drap. Athugum hvort hann sé í kerfinu.‘‘
– ,,Gerum það‘‘, svarar Albert og síðan ganga þau saman inná skrifstofuna.
Hinn látni hét Örn Höskuldsson. Ágústa og Albert fletta honum upp í LÖKE, gagnagrunni Lögreglunnar. Örn var 28 ára gamall og skráður til heimilis við Arnarsmára í Kópavogi. Á hann eru skráð fjögur afbrot, allt umferðarlagabrot. Einnig var hann skráður sem meint vitni í líkamsárásarmáli og aftur sem meint vitni í eignarspjallsmáli. En hann hafði aldrei gerst sekur um eða verið ákærður fyrir kynferðisbrot.
Ágústa andvarpar. Albert er byrjaður að skoða Instagram-síðuna hennar Þóreyju. Þar má sjá ótal myndir af henni að stunda einhverja útivist eða líkamsrækt. Einnig hinar og þessar myndir af umhverfinu og bæjarlífinu í Hafnarfirði og víðar. Það eru líka myndir af henni að taka þátt í Druslugöngunni, þar sem hún stendur stolt við hlið nokkura kvenna sem halda saman á skilti með áletruninni; Yes means fuck me – No means fuck you.
– ,,Dólgafemínismi‘‘, hvíslar Albert.
– ,,Ha?‘‘ spyr Ágústa og horfir undrandi á Albert.
– ,,Æ, þú veist… druslugangan og allt þetta. Karlfyrirlitningin. Þetta er bara öfgahyggja. Hlaut að koma að því fyrr eða síðar að einhver slasaðist, eins og gerðist núna‘‘, útskýrir Albert.
– ,,Þú meinar það, já‘‘, svarar Ágústa áhugalaus.
– ,,Já, já. Svo margar ungar konur virðast vera byrjaðar að öfgavæða sig á netinu nú til dags.‘‘
– ,,Þú segir það‘‘, tautar Ágústa og klárar seinasta sopann úr kaffibollanum sínum áður en hún stendur á fætur.
– ,,Ó… fyrirgefðu ég meinti ekki… eða ert þú nokkuð..?‘‘
– ,,Er ég hvað?‘‘ spyr Ágústa.
– ,,Femínisti…‘‘
– ,,Femínisti? Ég trúi á jafnrétti kynjanna, alla vega í skilningi laganna. En kynin eru auðvitað ólík. Er ég þá femínisti?‘‘
– ,,Tja ætli það ekki… ég bara veit ekkert með allt þetta lengur. Maður skilur ekki alveg fólkið í dag, alla vega ekki unga fólkið‘‘, tautar Albert og stendur einnig á fætur.
Ágústu er skemmt. Menn eins og Albert láta henni líða eins og hún sé enn ung og djörf en ekki vinnandi þrjátíu og þriggja ára kona.
– ,,Alla vega… góða nótt‘‘, segir Ágústa brosandi og býst til þess að yfirgefa skrifstofuna.
– ,,Já, góða nótt inspektör.‘‘ svarar Albert.
Klukkan er orðin meira en tvö að nóttu þegar Ágústa er komin aftur heim til sín. Hún býr á efstu hæð í íbúðablokk í Lindahverfi í Kópavogi. Hún byrjar á að opna sér dós af bjór áður en hún klæðir sig úr frakkanum. Hún veltir því fyrir sér sem Albert hafði spurt hana; hvort hún sé femínisti. Í raun hafði Ágústa aldrei haft sterkar skoðanir á jafnréttismálum. Henni hafði alltaf fundist eins og henni stæðu allir vegir færir, það að vera kona hafði aldrei aftrað henni að neinu leyti. Áhugasvið Ágústu er frekar þröngt. Hún hefur áhuga á öllu sem viðkemur Lögreglunni og löggæslu almennt. Henni finnst gaman í skotfimi, hún hefur gaman af líkamsrækt og hún heimsækir reglulega vini og ættingja. En þar fyrir utan spáir hún ekki mikið í veröldinni í kringum sig. Hún hafði aldrei haft sterkar skoðanir á stjórnmálum eða öðrum veraldlegum málefnum eins og til dæmis jafnréttisbaráttu kynjanna.
Ágústa fær sér sæti á sófanum og sötrar rólega bjórinn sinn meðan hún hugsar sig um. Er það kannski vegna þess að hún hefur áhuga á svo fáu í kringum sig að hún er ennþá einhleyp? Hún gat aldrei enst lengi í samræðum við menn um málefni sem tengdust ekki beint henni eða einhverju sem hún var að gera. Flestir karlmenn sem hún þekkir eiga sér stórtæk áhugamál eða virðast getað talað um hvað sem er. En hver veit, kannski er hún bara einhleyp vegna þess að hún forgangsraðar alltaf vinnunni fram yfir einkalífið. Eins og núna, núna verður hún að segja vini sínum á Akureyri að hún þurfi að fresta stefnumótinu þeirra í annað sinn vegna vinnunnar. Auðvitað þurfti að eiga sér stað morð, einmitt þegar hún ætlaði norður á stefnumót! Einmitt á föstudeginum þrettánda, þótt árásin sjálf hafi reyndar átt sér stað um korteri fyrir miðnætti. Ágústa bölvar í hljóði og svolgrar síðan í sig restina af bjórnum.