Forsíðumynd eftir Jóhönnu Selmu Brynjólfsdóttur

Útkomumánuður júni 2022.

Reykjavík, sumarið fyrir Covid-heimsfaraldur. Barir eru opnir, fólk heldur partí, fer á djamm í miðbænum eða æfar í ræktinni. Einhverjir eru í ástarsorg, einhver verður ástfanginn í fyrsta sinn… Þræðir sem tengja söguhetjurnar saman liggja víða og koma smám saman í ljós. Einföld en í senn marglaga ástarsaga sem vindar uppá sig og verður að miskunarlausri glæpasögu þar sem 16 ára, óvenjulega sjálfstætt stelpa úr Vesturbænum kemur atburðarási af stað með skuggalegum afleiðingum.

Káputexti:

Sigríður Vagnsdóttir er sextán ára og býr í Vesturbæ Reykjavíkur. Hún elskar klassiskt rokk og reynir að fara í ræktina minnst þrisvar í viku. Mamma hennar er dáin, pabbi hennar er í fangelsi og hún hefur alltaf átt erfitt með að eignast vini. Og í fyrsta sinn á ævinni er hún ástfangin.

En Sigríður býr yfir leyndarmáli; hún er hættulegasta glæpakona landsins.“

Bókin ÓGNAREÐLI – GLÆPSAMLEG ÁSTARSAGA er sannkallaður sumarsmellir og hentar vel í hvaða tjaldvagn, hjólhýsi eða sumarbústað sem er. Þú leggur hana ekki frá þér og getur lesið allan sólarhringinn í óendanlegri birtu sumarsins.

Höfundurinn hefur áður sent frá sér skáldsögurnar SKAÐAMAÐUR (2010) og LEITIN AÐ ENGLI DAUÐANS (2016). Hann er einnig með Youtube-rásina ICELAND IN REAL LIFE.

Ógnareðli – glæpsamleg ástarsaga, kilja, 290 bls., 4200 kr. Hægt er að panta á pöntunarsíðu þessa vefs. Engin sendigarkostnaður fyrir fyrstu 10 pantanir, eftir það er sendingarkostnaður kr. 1000.