Um útgáfuna túrí ehf
Útgáfan „túrí ehf“ er staðsett á landsbyggðinni, nánar tiltekið í Húnaþingi vestra, og var stofnuð 2003.
Fyrsta bókin kom út 2004, ISLANDKOCHBUCH eftir Maike Hanneck en bókin fjallar um íslenska matargerð og uppskriftir á þýsku. Enn þann dag í dag er hún ein af fáum matreiðslubókum á þýsku á íslenskum markaði. Sú bók er einnig fáanleg á frönsku. Hún heitir CUISINER ISLANDAIS og er ein sinnar tegundar hérlendis. Engin önnur bók á frönsku er til um matargerð á Íslandi. Bækurnar eru afar vinsælar og er hægt að nálgast þeim á helstu ferðamannastöðum Íslands eða í gegnum þessa síðu (sjá „hafa samband“).
Árið 2005 kom út MAKE YOUR OWN HISTORY sem er föndurbók um íslenska torfbæinn. Bókin er í A4-broti með leiðbeiningum á 5 tungumálum.
2010 bættist svo fyrsta skáldsagan SKAÐAMAÐUR, eftir Jóhann Fönix, við. Höfundurinn sendir núna frá sér aðra skáldsögu, LEITIN AÐ ENGLI DAUÐANS.
Auk þess hefur túrí ehf gefið út póstkort með kúamyndum eftir Jón Eiríksson (bónda og listamann á Búrfelli í Húnaþingi vestra) sem og nokkur smárit.
Hafðu samband
túrí ehf
Teigagrund 8, 531 Hvammstangi, Ísland
kt. 601103-2730
vsk-númer 83169
s. +354-4510082 og +354-8985154
Sendu okkur skilaboð í gegnum formið hér að neðan: