
Reykjavík, sumarið fyrir Covid-heimsfaraldur. Barir eru opnir, fólk heldur partí, fer á djamm í miðbænum eða æfir í ræktinni. Einhverjir eru í ástarsorg, einhver verður ástfanginn í fyrsta sinn… Þræðir sem tengja söguhetjurnar saman liggja víða og koma smám saman í ljós. Einföld en í senn marglaga ástarsaga sem vindar uppá sig og verður að miskunarlausri glæpasögu þar sem 16 ára, óvenjulega sjálfstæð stelpa úr Vesturbænum kemur atburðarás af stað með skuggalegum afleiðingum.
Káputexti
Sigríður Vagnsdóttir er sextán ára og býr í Vesturbæ Reykjavíkur. Hún elskar klassiskt rokk og reynir að fara í ræktina minnst þrisvar í viku. Mamma hennar er dáin, pabbi hennar er í fangelsi og hún hefur alltaf átt erfitt með að eignast vini. Og í fyrsta sinn á ævinni er hún ástfangin.
En Sigríður býr yfir leyndarmáli; hún er hættulegasta glæpakona landsins.
Bókin ÓGNAREÐLI – GLÆPSAMLEG ÁSTARSAGA er sannkallaður sumarsmellur og hentar vel í hvaða tjaldvagn, hjólhýsi eða sumarbústað sem er. Þú leggur hana ekki frá þér og getur lesið allan sólarhringinn í óendanlegri birtu sumarsins.
Höfundurinn hefur áður sent frá sér skáldsögurnar SKAÐAMAÐUR (2010) og LEITIN AÐ ENGLI DAUÐANS (2016).